Samkvæmt a.m.k. fimm opinberum skýrslum sem unnar hafa verið á síðustu 25 árum hafa skattgreiðendur og ríkissjóður orðið fyrir endurteknum og mjög alvarlegum áföllum. Þessar skýrslur – skattsvikaskýrslan frá 2005, Aflandsskýrslan, Milliverðlagningarskýrslan, Rannsóknarskýrsla Alþingis um bankahrunið og tengdar rannsóknir – draga upp samfellda mynd af stöðugum kerfisbundnum veikleikum í ríkisfjármálunum, seinkuðum viðbrögðum og skorti á raunverulegri ábyrgð.