Fámennt og strjálbýlt ríki á norðurslóðum byggt á fiskveiðum, einkum þorskveiðum. Ríkið hlaut heimastjórn og varð sjálfstjórnarríki. Það hafði sitt eigið þing, ríkisstjórn og sinn þjóðsöng fyrir rúmum hundrað árum. Þetta ríki upplifði síðar fjármálahrun. Ríkið gafst upp og reiddi sig á erlendan stuðning. Lesandinn hélt ef til vill að hér væri verið að lýsa Íslandi. Það var eðlilegt, við gengum í gegnum svipað áfall árið 2008. Munurinn er sá að við afsöluðum okkur engu.