Bíll úr flota lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.RÚV / Alexander KristjánssonTveir menn, vopnaðir hamri og öxi, voru handteknir í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt.Í dagbók lögreglu segir að tilkynning hafi borist um vopnaða menn sem voru sagðir ógnandi og árásargjarnir.Lögreglan lagði hald á vopnin, handtók mennina og færði niður á lögreglustöð.Meðal þeirra verkefna sem rötuðu á borð lögreglu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun var tilkynning um þjófnað á hóteli í miðborginni. Þrír eru grunaðir um að hafa stolið þaðan hörðum diski.Tvær tilkynningar bárust um umferðaróhöpp. Annað var í Mosfellsbæ en hitt í póstnúmeri 110 í Reykjavík. Engan sakaði en tveir bílar urðu fyrir tjóni í hvoru slysi fyrir sig.