Formaður Landssambands smábátaeigenda segir það enga spurningu að strandveiðivertíðin í ár sé sú besta frá upphafi. Í gær var enn beðið ákvörðunar innviðaráðherra um ráðstöfun á 960 tonna kvóta úr svokölluðum skiptipotti. Strandveiðimenn vonast til að fá þessar aflaheimildir.