Breytingar á veðri fylgja lægð sem nálgast landið

Það spáir bjartviðri austanlands í dag en skýjuðu veðri og dálítilli súld eða rigningu með köflum vestan til, einkum síðdegis. Suðlæg átt og víða 3–10 metrar á sekúndu en suðvestan 8–13 með suðausturströndinni. Hiti 10–19 stig.Síðustu daga hefur hæðarhryggur yfir landinu valdið hægum vindum og mildu veðri en breytinga er að vænta í kvöld. Þá nálgast landið lægð sem hefur verið í myndun við suðausturströnd Grænlands. Hún ýtir hæðarhryggnum frá landinu.Úrkomuskil ganga inn á suðvesturhorn landsins seint í kvöld og nótt með rigningu eða súld. Þá tekur líka að hvessa norðvestanlands með fremur ákveðnum norðaustlægum áttum. Úrkomulítið verður norðan- og austanlands fram eftir morgundeginum.Á föstudaginn verða norðlægar áttir ríkjandi með vætu í flestum landshlutum og heldur kólnandi veðri, eink
Breytingar á veðri fylgja lægð sem nálgast landið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd