Á annan tug drepinn í flugskeytaárás Rússa á Kænugarð og nágrenni

14 voru drepnir og 22 særðust í árásum Rússlandshers á Kænugarð og nágrenni í nótt. Loftvarnarflautur ómuðu í borginni í yfir klukkustund á meðan fjöldi flugskeyta hæfði borgina og útjaðar hennar. Hermálayfirvöld borgarinnar segja að bæði vöru- og íbúðarhús hafi eyðilagst í árásinni. „Enn á ný gerir óvinurinn árásir á almenna borgara og borgaralega innviði af ásettu ráði,“ segir í tilkynningu þeirra.Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir að árásirnar hafi beinst að birgðastöðvum og miðstöðvum fyrir flutninga í og við Kænugarð. Skotmörkin hafi tengst framleiðslu, geymslu og dreifingu á hergögnum Úkraínuhers. Þá segir ráðuneytið að herinn hafi einnig hæft þrjú flutningaskip nærri hafnarborginni Odessu. Þau hafi flutt vopn og önnur hergögn.Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, segir að fjöld
Á annan tug drepinn í flugskeytaárás Rússa á Kænugarð og nágrenni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd