Fjöldagröf fannst í norður Kósovó

Yfirvöld í Kósovó segja að fjöldagröf hafi fundist í Zubin Potok í norðurhluta landsins. Þar hafa nú þegar fundist líkamsleifar 11 einstaklinga. Uppgröftur hófst í síðustu viku og hefur leitarsvæðið verið stækkað en yfirvöld telja að allt að 23 einstaklingar gætu verið grafnir þar.Grunur leikur á að fjöldagröfin sé frá tímum Kósovóstríðsins milli hers Serbíu og Svartfjallalands og frelsishers Kósovó-Albana seint á 10. áratugnum. 13.000 voru drepnir í átökunum og 4.000 var saknað þegar stríðinu lauk. Margir þeirra sem saknað var fundust síðar í fjöldagröfum en enn er 1.600 manns saknað.Settur forsætisráðherra Kósovó, Albin Kurti, sagði á laugardaginn að líkamsleifarnar væru mjög líklega af 23 Albönum sem voru rændir og teknir af lífi vorið 1999.Lífsýni verða tekin úr líkamsleifunum og send
Fjöldagröf fannst í norður Kósovó

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd