Gistinóttum á hótelum í júnímánuði fækkaði milli ára, eða um 0,4 prósent, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Gistinæturnar voru rúmlega 532 þúsund á landsvísu en voru í fyrra 535 þúsund. Mikil umræða hefur verið síðustu mánuði um óvissu í efnahagsmálum og hvort Ísland sé orðið of dýrt fyrir ferðamenn.