Sorphirðumenn á Ítalíu fundu lottómiða að verðmæti einnar milljónar evra í ruslabíl eftir að örvæntingarfullur vinningshafi lýsti eftir honum. Vinningsupphæðin nemur einni milljón evra eða um 140 milljónum íslenskra króna.Vinningsmiðinn fannst í heilu lagi eftir að starfsmenn sorphirðufyrirtækis í Puglia-héraði fóru í gegnum ruslið sem safnað hafði verið í bílinn.Roberto Nicola Toscano, framkvæmdastjóri sorphirðufyrirtækisins SANB á Suður-Ítalíu, segir það kraftaverki líkast að miðinn hafi fundist óskaddaður. LEITUÐU Í SORPI Í HÁLFAN SÓLARHRING Að sögn Toscano fór kona ein, sem ekki hefur verið nafngreind, í nærliggjandi verslun á sunnudag til að láta yfirfara miðann sinn. Þá sýndi vélin að ekki var hægt að greiða út vinninginn þar vegna þess að litlar verslanir geta aðeins greitt út sm