„Bændur eru uggandi og áhyggjufullir – og við hjá samtökunum – yfir þessari mögulegu þróun og ólögmætu aðgerðum einhverra ofstækissinna,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna.Vísar hún þar til innbrotanna í Dalsbú, Reykjabú og svínabú Stjörnugríss fyrr á árinu. ÁHYGGJUR AF ÞVÍ HVAÐA BÚ GÆTU VERIÐ NÆST Hún segir það nýjan raunveruleika ef bændur eiga yfir höfði sér að brotist sé inn á bú þeirra og vonar að þeir sem standi að baki innbrotunum verði látnir sæta ábyrgð fyrir þau.Margrét Ágústa bendir á að bú séu jafnframt heimili bænda og væntir þess að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða til að tryggja öryggi þeirra og fjölskyldna þeirra til framtíðar litið.Innbrotin veki upp áhyggjur af því hvaða bú, eða búgrein, gæti orðið fyrir barðinu næst. „Þetta er