Bandarísk stjórnvöld eru bjartsýn á að samningur um að opna Hórmussund að nýju náist í dag eða á morgun, að sögn háttsetts embættismanns. Bjartsýnin varð til þess að Brent-hráolíuverð lækkaði um tæp 5% eða niður í tæpa 80 dali á tunnuna, að því er kemur fram á AFP-fréttastofunni.Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í samtali við fréttastöðina CNBC að „líkur séu á að samningur náist“ á næstu klukkustundum. Donald Trump Bandaríkjaforseti talaði frá Hvíta húsinu í gær þar sem hann varaði við að þetta væri „síðasta tækifæri Írans áður en látið verður til skarar skríða“.Þrátt fyrir að Trump hafi fullyrt að samningaviðræður eigi sér stað hefur utanríkisráðuneyti Írans alfarið neitað því.Stjórnvöld í Teheran og Washington hafa staðið í stríði síðan 28. febrúar, þegar Bandaríkin og