Hægt að horfa með berum augum á almyrkvann en ekki deildarmyrkvann

Fólk er beðið um að vera vel undirbúið og tímanlega á ferðinni, hyggist það fylgjast með sólmyrkvanum sem verður í næstu viku. Fólk um allt land kemur til með að finna fyrir sólmyrkvanum, þó sýnu mest þau sem eru vestast á landinu.„Sólmyrkvagleraugu sem eru örugg og vottuð eru eingöngu notuð á meðan tunglið er að færast fyrir sólina, þ.e. í deildarmyrkvanum sjálfum. Svo þegar almyrkvinn skellur á þá verðurðu að taka gleraugun af og horfa upp með berum augum af því að annars sérðu ekki almyrkvann,“ segir Sævar Helgi Bragason, oft kallaður Stjörnu-Sævar.Gleraugun er bara hægt að taka af þar sem almyrkvinn sést. „Í deildarmyrkva þarf alltaf að nota gleraugun,“ segir Sævar Helgi.Almyrkvinn verður sýnilegur mislengi eftir staðsetningu og varir lengst á Reykjanesi, Vesturlandi, Vestfjörðum og á
Hægt að horfa með berum augum á almyrkvann en ekki deildarmyrkvann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd