Áætla að opna nýja bráðamatsdeild með tuttugu rýmum í september

Áætlað er að opna tuttugu rými á nýrri deild á Landspítala í september. Deildin er hluti af bráðaþjónustu spítalans og er henni ætlað að létta á bráðamóttökunni.„Bráðamatsdeildin er deild sem sér um að taka við sjúklingum frá bráðamóttöku sem þurfa frekara mat og uppvinnslu, frekari meðferð. Þetta er sem sagt deild innan lyflækninga og henni er ætlað að taka við fólki sem ekki kemst beint heim frá bráðamóttökunni heldur þarf aðeins lengri tíma og annaðhvort getur það útskrifast heim í kjölfarið eða þarf áframhaldandi innlögn inni á spítalanum,“ segir Telma Huld Ragnarsdóttir, yfirlæknir á almennum lyflækningum á Landspítala.Rætt hefur verið um slæma stöðu bráðamóttöku Landspítalans árum saman. Fólk hefur legið frammi á göngum deildarinnar svo dögum skiptir og álag á starfsfólk verið mikið.
Áætla að opna nýja bráðamatsdeild með tuttugu rýmum í september

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd