Eftirlíkingar af skotvopnum eða leikföng?

Ungir menn, sem sagðir eru hafa ógnað fólki með leikfangabyssum á Akureyri, verða mögulega ákærðir fyrir vopnalagabrot. Meira en hálfur sólarhringur leið frá því að mennirnir voru handteknir þar til greint var frá því að þeir hefðu ekki verið með alvöru byssur.Í skotvopnalögum er fjallað um eftirlíkingar af byssum og þeim settar talsvert þröngar skorður; það þarf til dæmis byssuleyfi, þær þarf að skrá og geyma í byssuskáp. SÉRSVEITIN AÐSTOÐAÐI VIÐ HANDTÖKUNA Upp úr klukkan þrjú síðdegis á sunnudag greindi lögreglan á Norðurlandi eystra fréttastofu frá því að fimm ungir menn hefðu verið handteknir í stórri lögregluaðgerð á Akureyri. Mennirnir eru í kringum tvítugt, búa á Íslandi en eru af erlendum uppruna.Samkvæmt lögreglu höfðu þeir beint skotvopnum að fólki og í ljósi alvarleika aðstoð
Eftirlíkingar af skotvopnum eða leikföng?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd