Skipverjum Bandero brottvísað

Fimm skipverjar Bandero hafa verið kallaðir á fund lögreglu og verið tilkynnt um brottvísun og endurkomubann. Útlendingastofnun vinnur að ákvörðunum um brottvísanir og óvíst er að ákvörðun náist í máli allra skipverjanna í dag.Lögregla hefur kallað skipverjana á fund einn af öðrum í kvöld. Þar er þeim kynnt ákvörðun um að þeir séu frjálsir ferða sinna, en skuli sinna tilkynningaskyldu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Útlendingastofnun staðfest brottvísun allra þeirra sem þegar hafa farið á fund lögreglu.Skipverjarnir fá einnig endurkomubann, mislangt eftir því hvaðan þeir koma.Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að ríkislögreglustjóri muni sjá um framkvæmd brottvísananna.Lögreglan hafði gert skipverjunum að vera um kyrrt í skipinu en einn skipverj
Skipverjum Bandero brottvísað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd