Íslenska lögreglan er aðili að OTF GRIMM-aðgerðahópi Evrópulögreglunnar Europol sem meðal annars berst gegn ráðningum barnungra leiguböðla til að ryðja andstæðingum írönsku klerkastjórnarinnar og annarra andstæðinga glæpagengja á borð við Foxtrot úr vegi. Sérfræðingur segir klíkurnar ráða æ yngra fólk til fólskuverka.