Byrjað verður að leggja vatnslögn frá Landeyjahöfn að Skansfjöru í Vestmannaeyjum í kvöld.„Hún var sótt í síðustu viku til Danmerkur þar sem hún var framleidd. Nú eru þeir komnir með útlagningarskipið. Það kom hingað í morgun,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, sem vonast til að lögnin verði tilbúin um helgina.Lögnin er almannavarnalögn og verður því ekki nýtt til að dreifa vatni í Vestmannaeyjabæ. „En hún er sannarlega til staðar ef eitthvað kemur upp á eins og gerðist fyrir tæpum þremur árum,“ segir Íris.Neysluvatnslögnin til Vestmannaeyja skemmdist eftir að akkeri togarans Hugins VE 55 hafnaði á henni í nóvember 2023. Bærinn höfðaði skaðabótamál gegn Hugin, Vinnslustöðinni og VÍS vegna skemmdanna og krafðist um tveggja milljarða króna. Ekki var fallist á kröfu bæjarin