Matvælastofnun hótaði að stöðva starfsemi hestaleigunnar Sólhesta fyrr á árinu eftir að aðstandendur fyrirtækisins gáfu lítið fyrir fjölda alvarlegra athugasemda við heilbrigði margra hesta. Sólhestar eru með starfsemi í Reykjavík og í Reykjadal.Í erindi Matvælastofnunar til Sólhesta kemur fram að frávikin hafi verið það alvarleg að þau hafi kallað á tafarlausar úrbætur. Fallið var frá boðaðri stöðvun á eftir að úrbætur voru gerðar. Eftirlit með hestaleigunni verður tíðara í framhaldinu.Brot Sólhesta, eða frávik, sem eru tíunduð í tíu skoðunarskýrslum frá 14. janúar til 8. apríl og fleiri skjölum, sneru einkum að slæmu holdarfari hesta sem margir þóttu alltof grannir. Þá þótti sérstaklega ámælisvert þegar hross voru notuð í útreiðartúr þrátt fyrir að opinber eftirlitsaðili hefði bannað not