Að minnsta kosti einn skipverji af Bandero, skipi Paul Watson samtakanna, er nú frjáls ferða sinna. Viðkomandi, sem er karlmaður og sinnir fjölmiðlastörfum um borð, kærði ákvörðun lögreglu um að meina áhöfninni að fara frá borði, en skipið liggur við Sundahöfn.Héraðsdómur Reykjavíkur felldi ákvörðun lögreglu úr gildi núna síðdegis.Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður mannsins staðfesti þetta í samtali við fréttastofu. Hann sagði skjólstæðingi sínum gert að halda sig á höfuðborgarsvæðinu og sinna tilkynningaskyldu til lögreglu.Lögregla hefur meinað skipverjum Bandero að fara frá borði síðan skipið kom til Sundahafnar á föstudaginn eftir að Landhelgisgæslan og sérsveitin tóku yfir stjórn þess í kjölfar þess að Bandero reyndi að hefta för hvalveiðiskipsins Hvals 9 og hlýddi ekki fyrirmælum Gæs