„Við tökum okkur saman, stöndum keik og göngum saman í gleði og stolti“

Hinsegin dagar voru settir í dag fyrir utan Iðnó í miðborg Reykjavíkur sem er miðstöð Hinsegin daga. Fjölbreytt dagskrá verður alla vikuna sem nær hápunkti á gleðigöngunni á laugardaginn.Helga Haraldsdóttir formaður Hinsegin daga setti hátíðina formlega. Guðjón Þorgils Kristjánsson flutti lagið Framávið, sem er lag Hinsegin daga 2026, á meðan framfarafáninn var dreginn á húni. FLEIRI SEM TAKA ÞÁTT Í GÖNGUNNI Í ÁR Yfirskrift Hinsegin daga í ár er Sameinumst undir regnboganum. „Sameinumst undir regnboganum er boð um að koma saman, standa saman og áminning um að það er pláss fyrir okkur öll undir regnboganum,“ segir Helga.Spurð hvort öryggisgæsla verði hert á gleðigöngunni í ár í ljósi árásarinnar sem var gerð á gleðigöngu í Berlín í júlí segir Helga skipuleggjendur eiga í góðu sambandi vi
„Við tökum okkur saman, stöndum keik og göngum saman í gleði og stolti“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd