Allir skipverjar Bandero verða frjálsir ferða sinna í dag. Lögreglan ætlar að áfrýja ákvörðun héraðsdóms um ógildingu ákvörðunar um að hefta för áhafnarinnar frá borði til Landsréttar.Þetta segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, við fréttastofu.Lögmaður skipverjans sem kærði ákvörðun lögreglu staðfesti við fréttastofu að skjólstæðingur hans væri frjáls ferða sinna eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti ákvörðun lögreglu.Ásgeir Þór segir að lögregla hafi heimild til að takmarka för fólks við ákveðna staði, en að héraðsdómur hafi metið það svo að skipið væri ekki nógu vel skilgreindur staður. Hann segir að úrskurðinum verði áfrýjað til Landsréttar þar sem réttarframkvæmd í málum sem þessum sé lítil.Úrskurður héraðsdóms nær aðeins til skipve