Komum minni skemmtiferðaskipa eða svokallaðra leiðangursskipa, sem stoppa aðallega í smærri höfnum víðs vegar um landið, hefur fækkað á þessu ári. Bókanir fyrir næstu tvö ár eru í algjöru lágmarki og hefur það töluverð áhrif á ferðaþjónustuna á landsbyggðinni. Innviðagjaldið sem var sett á með skömmum fyrirvara um áramótin hefur áhrif sem og nýjar reglur um að leiðangursskipin sem sigli innan íslenskrar lögsögu séu virðisaukaskattskyld.„Við höfum séð talsverða truflun í komum leiðangursskipa undanfarin ár eftir að nýju skattarnir og gjöldin voru sett á,“ segir Hans Braas, svæðisstjóri Norðurlandaþjóða fyrir alþjóðasamtök skemmtiferðaskipa, CLIA. Hann segir að Ísland sé eina þjóðin í Evrópu þar sem skipakoma minnki, alls staðar annars staðar sé fjölgun. Hægt sé að rekja það beint til nýrra