Alls hafa rúmlega 3.600 greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Það á við atkvæði hjá öllum sýslumannsembættum auk sendiráða Íslands og kjörræðismanna erlendis.2.411 hafa greitt atkvæði hjá Sýslumanni höfuðborgarsvæðisins við Hlíðasmára í Kópavogi.Þjóðaratkvæðagreiðslan verður haldin 29. ágúst og atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst 27. júlí.RÚV / Ragnar Visage