Framburður vitna í fimm ára gömlu líkamsárásarmáli var ruglingslegur og misvísandi á marga vegu. Þess vegna var það mat Héraðsdóms Reykjavíkur að ákæruvaldið hafi ekki axlað sönnunarbyrgðina sem á því hvílir. Þess vegna voru sex menn sýknaðir í málinu, þar á meðal Gabríel Douane Boama, sem ítrekað hefur komist í kast við lögin undanfarin ár.