Enginn liggur undir grun um innbrotin á búin þrjú

Lögregla hefur lítið í höndunum við rannsókn innbrotsins á Dalsbú í Mosfellsbæ þar sem þúsund minkum var sleppt úr búrum sínum aðfaranótt miðvikudags.Enginn liggur undir grun um verknaðinn og fá sönnunargögn eru í málinu. Lögregla þiggur allar ábendingar sem gætu aðstoðað við rannsóknina.Enn sem komið er er enginn til að kalla í skýrslutöku og fátt til að byggja á við rannsókn málsins.Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, biður fólk sem gæti vitað eitthvað um málið að gefa sig fram við lögreglu. „Kannski finnst fólki eitthvað ómerkilegt sem getur skipt gríðarlega miklu máli.“Hún segir að lítið myndefni og nánast engin sönnunargögn séu af vettvangi. „Það er það sem gerir okkar vinnu svo erfiða.“ ENGINN UNDIR GRUN VEGNA INNBROTA Í REYKJABÚ OG SVÍNA
Enginn liggur undir grun um innbrotin á búin þrjú

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd