Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um tuttugu mínútur yfir eitt í dag eftir að eldur kviknaði í bíl í Skeifunni.Guðmundur Hreinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn sem logaði aðeins í einum bíl. Enginn var í bílnum þegar eldurinn kviknaði og enginn var fluttur á sjúkrahús. Slökkviliðsmenn voru um tuttugu mínútur að slökkva eldinn að sögn Guðmundar.Fyrr í dag sagði Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, við fréttastofu að einn dælubíll hefði verið sendur á vettvang.Sigurjón tiltók að þetta væri ekki rafmagnsbíll og taldi ekki mikla hættu stafa af bílnum. Fréttin var uppfærð.