Neytendastofa hefur sektað bílastæðafyrirtækin EasyPark um 500 þúsund og Parka um eina milljón vegna upplýsingagjafar og viðskiptahátta fyrirtækjanna í tengslum við gjaldskyld bílastæði. Í ákvörðununum komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, auk reglna sem stofnunin hefur eftirlit með.Á vef Neytendastofu segir að brot EasyPark hafi falist í því að kostnaður við notkun greiðslulausnar félagsins var ekki tilgreindur á þeim gjaldsvæðum þar sem lausnin var kynnt neytendum.Brot Parka fólust meðal annars í því að veittar voru rangar upplýsingar um greiðslulausnir, gildistíma viðveru, gjaldskyldu og verð fyrir viðveru. Þá var upplýsingagjöf um verð fyrir viðveru, gjald vegna greiðslulausna, vangreiðslugjald eða hærr