Bandero, skip Paul Watson samtakanna, hefur verið kyrrsett í Sundahöfn síðan á föstudagsmorgun eftir að Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn þess í kjölfar þess að Bandero reyndi að hefta för hvalveiðiskipsins Hvals 9 og hlýddi ekki fyrirmælum Gæslunnar. EINN KÆRÐI ÁKVÖRÐUN LÖGREGLU Skipverjum hefur síðan þá verið meinað að fara frá borði, einn þeirra kærði þá ákvörðun lögreglu og að sögn Ásgeirs Þórs Ásgeirssonar, aðstoðarlögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, er úrskurðar að vænta í dag.Hann segir að áhöfnin geti útvegað sér vistir eftir þörfum og þá hafi lögmenn skipverja komið um borð.Ásgeir segir að verið sé að fara yfir gögn, sem eru meðal annars upptökur og framburður skipverja á Bandero og á Hval 9.Lögregla fór fram á brottvísun allra skipverjanna, sem