Skaflinn í Gunnlaugsskarði er eins konar óformlegur mælikvarði höfuðborgarbúa á tíðarfar. Kona sem gekk á Esjuna í fyrrakvöld segir heldur lítið eftir af honum. Hann sé kannski tíu metra langur, varla nema tveir metrar á breiddina og ansi þunnur og ræfilslegur. Myndin hér fyrir ofan var tekin þá.Árið 2019 hvarf skaflinn í september og var það í fyrsta sinn frá haustinu 2012. Í fyrra hvarf hann í byrjun ágúst sem þótti óvenjusnemmt en þá hafði hann ekki horfið fyrir ágústlok síðan 2010. Árni Sigurðsson veðurfræðingur fylgdist með þróun skaflans lengi vel en hann er nú hættur störfum.Skaflinn er yfirleitt horfinn um mánaðamótin september og október og ef hann bráðnar alveg þykir sumarið á undan hafa verið sérstaklega gott. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir einkum tv