Landsbankinn og Arion banki vinna að því að yfirfara og endurgreiða kostnað sem myndaðist vegna villu fyrir helgi þar sem færslur tvöfölduðust hjá viðskiptavinum. Kostnaðurinn kom til dæmis til vegna innistæðulausra færslna en í einhverjum tilvikum lentu viðskiptavinir í að eiga ekki heimild á kortunum sínum vegna tvíbókana.Samkvæmt upplýsingum fréttastofu má rekja tvíbókun færslnanna til villu í kerfum Rapyd á Íslandi sem sinna færsluhirslu fyrir greiðslukort bankanna.Rapyd sagði upp um fjörutíu starfsmönnum í maí. Uppsagnirnar voru hluti af skipulagsbreytingum á alþjóðavísu og gervigreind vinnur nú störf fjölda starfsmannanna.Fréttastofa hefur enn ekki náð í forsvarsmenn Rapyd.