157 flóttamönnum var bjargað úr Ermarsundi eftir að eldur kviknaði í bát þeirra. Björgunarskip frá Bretlandi og Frakklandi voru send til að koma fólkinu til bjargar.Staðaryfirvöld í Pas-de-Calais-sýslu segja að engar tilkynningar hafi borist um að fólk hafi látist en margir hoppuðu frá borði eftir að eldurinn kviknaði.Þetta er ein umfangsmesta björgunaraðgerð á sundinu frá því að yfirvöld byrjuðu að halda tölulegar upplýsingar um bjarganir árið 2018.Frönsk yfirvöld segja bátinn hafa lagt af stað frá Veules-les-Roses í Normandí í gær. AFP-fréttaveitan hefur eftir þeim að meðalfjöldi í bátum sem sigla yfir sundið hafi vaxið talsvert á síðustu árum, úr 26 fyrir fimm árum í 65 það sem af er ári. Samkvæmt vitnum hafi stærri gúmmíbátar en venjulega siglt frá Frakklandi yfir til Bretlands.Yfir 41