Áform til lagabreytinga um íslensk landshöfuðlén voru kynnt á samráðsgátt stjórnvalda skömmu fyrir helgi. Í svari innviðaráðuneytisins til fréttastofu RÚV frá því í febrúar segir að: „Innviðaráðherra telur brýnt að breyta lögum um íslensk landshöfuðlén á þann veg að hert verði á opinberu eftirliti með skráningastofunni sem heldur utan um landshöfuðlénið .is.“Lagabreytingunum er ætlað að verja orðspor landsins tengt notkun á landsléninu, auka vernd neytenda og koma á sterkara eftirliti með markaðsráðandi aðilum. ISNIC ER HLUTAFÉLAG Í EINKAEIGU Í umsögn ráðuneytisins um áformin segir einnig: „ Internet á Íslandi hf. (ISNIC), sem er eini útnefndi skráningaraðili íslensks landshöfuðléns gagnvart alþjóðlegu stjórnkerfi internetsins og er því í einokunaraðstöðu hvað varðar úthlutun léna með e