Gengi lyfjafyrirtækisins Oculis hefur hækkað um tæp sjö prósent í tveimur viðskiptum fyrir alls 363 þúsund krónur í morgun. Félagið gaf út tilkynningu í gær um jákvæð viðbrögð taugasjúkdómadeildar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna við umsókn varðandi klíníska þróunaráætlun lyfsins Privosegtor við bráðum MS-köstum.