Fimm drepnir í árás Úkraínuhers á vöruhús Wildberries

Fimm voru drepnir og tíu særðust í árás Úkraínuhers á vöruhús í nágrenni höfuðborgarinnar Moskvu í nótt. Héraðsstjóri Moskvu-héraðs tilgreindi ekki nánar frá skotmarki árásarinnar en úkraínskir miðlar segja hana hafa beinst gegn fyrirtækinu Wildberries.Úkraínuher hefur á síðustu vikum gert endurteknar árásir á vöruhús og dreifingarmiðstöðvar netverslunarrisans sem er gjarnan kallaður „rússneska Amazon“.Stjórnvöld í Kænugarði saka fyrirtækið um að sjá Rússlandsher fyrir ýmiss konar íhlutum í dróna og öðrum birgðum. Þeim ásökunum hafa stjórnvöld í Moskvu hafnað.Yfirvöld í Rússlandi segja árásir hafa verið gerðar á vöruhús Wildberries í tveimur öðrum sýslum í nótt. Varnarmálaráðuneytið þar í landi segir 320 dróna frá Úkraínu hafa verið skotna niður í nótt.Úkraínsk yfirvöld segja konu á níræði
Fimm drepnir í árás Úkraínuhers á vöruhús Wildberries

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd