Evrópuríki ræða landamæraöryggi vegna Ceuta

Fulltrúar fjölda Evrópuríkja, þar á meðal dómsmálaráðherra Íslands, koma saman á fjarfundi um Schengen-samstarfið vegna atburðanna í Ceuta síðustu daga núna klukkan átta.Írar, sem fara með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins, boðuðu til fundarins eftir að tuttugu og tveir leiðtogar Evrópusambandsríkja sendu um helgina bréf til framkvæmdastjórnar sambandsins og lýstu yfir áhyggjum af öryggi á landamærum á Schengen-svæðinu.Tilefnið er að tugir þúsunda íbúa Marokkó streymdu yfir landamæri spænsku hólmlendunnar Ceuta, í Norður-Afríku, fyrir fáeinum dögum. Áætlað er að um sextíu þúsund hafi farið yfir landamærin en stærstur hluti þeirra er farinn frá Ceuta. Íbúar spænsku hólmlendunnar eru aðeins rúmlega áttatíu þúsund.Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir fundinn g
Evrópuríki ræða landamæraöryggi vegna Ceuta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd