Rússneski stjórnarandstæðingurinn Boris Nadezhdin er flúinn til Frakklands. Hann greindi frá þessu og birti myndband af sér fyrir framan Eiffelturninn í París á Telegram í gær.Nadezhdin hefur talað gegn innrás Rússa í Úkraínu. Hann reyndi að bjóða sig fram í forsetakosningunum í Rússlandi fyrir tveimur árum en fékk ekki að bjóða sig fram. Hann hafði lýst því yfir að hann ætlaði að bjóða sig fram til þingkosninga í haust.Í síðasta mánuði skilgreindi rússneska dómsmálaráðuneytið hann sem erlendan útsendara og þar með getur hann ekki boðið sig fram til þingkosninga. Hann fékk sekt fyrir að deila öfgatáknum á samfélagsmiðlum þegar hann deildi tengli á myndband sem sýndi ljósmynd af rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalny.Nadezhdin hefur ekki sagt hvernig honum tókst að flýja Rússland. H