Í dag má búast við hægri breytilegri átt og bjartviðri sunnan heiða og sums staðar norðanlands. Skýjað verður með köflum annars staðar og líkur eru á stöku skúrum vestan til og inn til landsins. Hiti verður á bilinu níu til fimmtán stig, svalast við norðausturströnd landsins.