Ísbjörn gæðir sér á ísklumpi í Asahiyama-dýragarðinum í Asahikawa á Hokkaido-eyju 25. júlí sl. Myndin tengist fréttinni óbeint.AP/Kyodo News / Junko OzakiGrunur leikur á að þrjár ljónynjur hafi drepist úr hitaslagi í dýragarði í Tokyo í Japan á síðustu dögum. Hiti hefur víða náð 40 gráðum í landinu á undanförnum vikum.Frá miðjum júlí hafa 10 af 16 ljónum Tama-dýragarðsins sýnt merki um minni matarlyst og hafa látið lítið fyrir sér fara. Dýralæknar garðsins segja að þrátt fyrir að ljón hafi mikið þol fyrir þurrum hita þá þrífist þau illa í miklum raka, líkt og hefur verið í Japan í sumar.Mörg ljón í dýragarðinum þurfa enn á sérstakri umönnun að halda vegna hitans. Verið er að vinna að því að bæta aðstæður þeirra með því að úða vatni og bæta úr loftræstingu og loftkælingu fyrir dýrin.