Þrír kólumbískir ferðamenn hafa verið týndir á Íslandi í rétt um viku en þau höfðu verið á ferðalagi um Evrópu þegar þeir lentu á Íslandi þriðjudaginn 28. júlí. Síðan þá hefur fjölskylda þeirra ekkert heyrt frá þeim. Þau áttu bókaða gistingu á Center Hotels Plaza í Reykjavík og voru við það að leggja af stað þangað frá Keflavíkurflugvelli síðast þegar frænka þeirra talaði við þau.