Sólmyrkvabátur, víkingabátur og rabbabarabátur tóku meðal annars þátt í furðubátakeppninni og dráttarvélarnar voru af ýmsum gerðum og misgamlar.„Flúðir um versló” var nafnið á hátíð helgarinnar, sem tókst einstaklega vel en á milli átta og tíu þúsund manns mættu á Flúðir. Dagskráin var fjölbreytt eins og furðubátakeppnin í gær í Litlu Laxá. Hér er t.d. sólmyrkvabátur, sem vakti mikla athygli, og víkingabáturinn og rabbabarabáturinn svo einhverjir séu nefndir.„Þetta er fallegasti viðburðurinn á Íslandi, búinn að vera ég veit ekki í hvað mörg ár, 20, 30, 50, 60 ár,“ segir Bergsveinn Theodórsson (Bessi hressi), forsvarsmaður hátíðarinnar.Strákar, eruð þið ekki ánægðir með pabba ykkar og að búa hérna á Flúðum?Jú, jú, hann er langbestur, hann kann þetta,“ segir Baltasar Breiðfjörð, sonur Bergsv