Telur tjónið vera tugmilljónir

Mun færri strokuminkar hafa fundist í Mosfellsdal eftir því sem liðið hefur á helgina. Forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar telur það til marks um að færri dýr hafi sloppið út fyrir varnargirðingar en talið var í upphafi.Síðan þúsundir minka sluppu úr loðdýrabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal á miðvikudaginn, eftir innbrot og skemmdarverk, hefur allra leiða verið leitað við að handsama þá. Minkaskyttur og leitarhundar kallaðir til og á annan tug gildra var settur upp víða um dalinn.Bæjarstjórn Mosfellsbæjar stjórnar þessum aðgerðum. ENGIR MINKAR GENGU Í GILDRUR SÍÐASTA SÓLARHRINGINN Gylfi Þór Þorsteinsson, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, segir að engir minkar hafi komið í gildrurnar síðasta sólarhringinn. Í gildrunum, sem eru vírbúr, er æti, sem eldisminkar girnast, fari þeir inn í gildrun
Telur tjónið vera tugmilljónir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd