Tvö alvarleg umferðarslys hafa orðið á Norðvesturlandi síðdegis í dag og í kvöld. Umferð um landshlutann er mjög þung á á frídegi verslunarmanna og fjöldi fólks á heimleið.Um klukkan 16:30 var þriggja bíla árekstur rétt sunnan við Vatnsdalshóla. Höskuldur Birkir Erlingsson, staðgengill yfirlögregluþjóns á Norðurlandi vestra, segir áreksturinn tilkominn vegna framúraksturs.„Það skella saman tveir bílar, fara framan á hvorn annan eða svona nánast. Svo lendir sá þriðji inni í þessu líka. Hann var með hjólhýsi. Hann er að vísu ekki eins skemmdur og hinir tveir. Hinir tveir eru mjög skemmdir og ógangfærir,“ segir Höskuldur.Sjúkrabíll var sendur á vettvang frá Blönduósi. Höskuldur segir útlit fyrir að enginn hafi slasast alvarlega í árekstrinum. Loka þurfti veginum við slysið um hríð, með tilhey