Óljóst er hver tildrög slyss á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi fyrir skömmu voru en viðbragðsaðilar eru nýkomnir á vettvang. Svo virðist sem farþegar og ökumenn tveggja bíla sem voru í árekstrinum séu meidd en ekki liggur fyrir hversu alvarlega áverka þau hlutu.