Ísland í hverri stórmyndinni á fætur annarri

Íslandi hefur brugðið fyrir í fjölda stórra kvikmynda á þessu ári: Ódysseifskviðu (The Odyssey), Ofurstelpunni (Supergirl), Meisturum alheimsins (Masters of the Universe) og Grænlandi 2 (Greenland 2: Migration). Þá verður Ísland einnig í stórmyndinni Dúna: Þriðji kafli (Dune: Part Three) sem er frumsýnd í desember.Ódysseifskviða og Dúna verða líklega meðal vinsælustu kvikmynda ársins. Fyrri kvikmyndin hefur á um hálfum mánuði halað inn rúmum 900 milljónum bandaríkjadala og er sem stendur fimmta söluhæsta kvikmynd ársins.„Þetta kemur allt í einhverjum svona sveiflum. Maður hefur nú séð stærri ár en þetta eru klárlega stórir póstar og sérstaklega eins og Odyssey – hún vekur gríðarlega athygli og það sama mun Dune 3 gera sem er frábært fyrir Ísland,“ segir Leifur B. Dagfinnsson, framkvæmdastj
Ísland í hverri stórmyndinni á fætur annarri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd