Mikil íbúðauppbygging á Hvammstanga

Brák íbúðafélag á 8 af 10 íbúðum í nýju fjölbýlishúsi á Hvammstanga. Alls á Brák 14 leiguíbúðir í bænum og eru þær allar í útleigu. Brák er húsnæðissjálfseignarstofnun sem var stofnuð árið 2022 af 31 sveitarfélagi og er rekin án hagnaðarmarkmiða. Nýverið sagði RÚV fréttir af húsnæðisþörf í Langanesbyggð, þar sem Brák hafði tekið fjórar íbúðir í notkun sem fóru strax í útleigu.„Brák íbúðarfélag var að taka í notkun 10 íbúða fjölbýlishús í hérna í bænum. Brák á sem sagt 8 íbúðir í þessu húsi og það er búið að leigja þær allar út. Það er búin að vera mikil húsnæðisuppbygging hjá okkur,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra og telur að hægt væri að byggja fleiri íbúðir sem færu strax í útleigu. EKKI BARA BRÁK AÐ BYGGJA Brák er ekki eitt um að byggja á Hvammsta
Mikil íbúðauppbygging á Hvammstanga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd