Áhöfnin á Bandero, skipi Paul Watson samtakanna, sem reyndi að hindra för hvalveiðiskips Hvals hf á fimmtudaginn er enn um borð í skipinu.Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir að tveir lögregluþjónar gæti skipsins, sem liggur við bryggju á lokuðu svæði í Sundahöfn. Hann segir að ekkert bendi til þess að það væsi um fólkið. PIZZUR OG NÓG AF VATNI „Vatn er um borð í tönkum og ef það vantar vatn, þá er því bætt á þarna í höfninni,“ segir Skúli.Hafa þau fengið aðstoð frá einhverjum? „Það hafa komið þarna fulltrúar frá sendiráðum, meðal annars. Þau pöntuðu sér mat, það komu pizzur þarna í gær. Þannig að þau eru einhvernveginn að bjarga sér, eins og maður segir.“ GÆTU ÞURFT AÐ VERA UM BORÐ Í FJÓRAR VIKUR Hvað gæti fólkið verið lengi í þessari stöðu? „Maður vonar að þ