Reyndust ekki skotvopn heldur „mjög nákvæmar eftirlíkingar“

Hlutir sem fundust í tveimur bílum í aðgerð lögreglu á Akureyri í gær reyndust ekki alvöru skotvopn. Börkur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir að vopnin hafi verið nákvæmar eftirlíkingar.„Þetta voru ekki virk skotvopn en mjög nákvæmar eftirlíkingar,“ segir varðstjórinn.Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók fimm á Akureyri síðdegis í gær eftir að tilkynning barst um grun um vopnaburð. Tveir bílar voru stöðvaðir og lögregla sagði skotvopn hafa fundist í þeim báðum. Fimmmenningarnir voru fluttir á lögreglustöð þar sem þeir voru teknir til yfirheyrslu. Þeir voru síðan látnir lausir í gærkvöldi að skýrslutöku lokinni. Lögregla vildi ekki tjá sig um aldur hinna handteknu.Í frétt Vísis segir að hin meintu skotvopn hafi í raun verið leikfangabyssur sem líkja eftir þýs
Reyndust ekki skotvopn heldur „mjög nákvæmar eftirlíkingar“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd