Vaxtamunur íslensku bankanna gefur til kynna skort á samkeppni. Á sama tíma og hagrætt er í rekstri eykst gjaldtaka, sem sýnir að sparnaðurinn skilar sér ekki til neytenda. Þetta er mat Breka Karlssonar, formanns Neytendasamtakanna. Landsbankinn birti uppgjör vegna fyrri hluta ársins á dögunum en þar kom fram að vaxtamunur, það er munurinn á útlánsvöxtum bankans og innlánsvöxtum, hefði hækkað...