Algert rafmagnsleysi varð á Kúbu seint í gærkvöld þegar raforkudreifikerfið brást enn á ný. Ítrekað rafmagnsleysi á eyjunni er tilkomið vegna úrelts raforkubúnaðar, viðskiptaþvingana Bandaríkjanna og eldsneytisskorts.Aðeins sólarhringur er síðan vesturhluti landsins varð alveg rafmagnslaus. Reuters segir að algert rafmagnsleysi hafi þrisvar sinnum orðið í júlímánuði.Rafmagnsleysið hefur mikil áhrif á þær tíu milljónir sem búa á eyjunni og íbúar eru orðnir langþreyttir á ástandinu. Vatnsból klárast hægt og rólega í rafmagnsleysinu og ekki er hægt að nýta loftviftur til kælingar innandyra.Íbúar sem hafa orðið hvað mest fyrir barðinu á rafmagnsleysinu hafa tjáð óánægju sína með því að kveikja í rusli og berja í potta og pönnur.Orkuráðuneytið á Kúbu segir að unnið sé að því að koma raforkudrei