60.000 lítrum af svartolíu dælt úr skipsflaki frá 1941

Um 60.000 lítrum af svartolíu var dælt úr flaki finnsks herskips í Eystrasalti nýverið. Herskipið Ilmarinen sökk við strendur sænsku eyjarinnar Utö í sænska skerjagarðinum í september 1941 þegar það sigldi á tundurdufl. Skipið hefur legið í votri gröf síðan.Finnska ríkisútvarpið segir að talið sé að um 100.000 lítrar af svartolíu hafi verið um borð í skipinu þegar það sökk, sem skapaði mikla hættu á umhverfisslysi.Finnska umhverfisstofnunin sagði að fyrir aðgerðina hefði olíuleki úr skipinu verið talinn vera um 1-2 olíudropar á mínútu sem láku í gegnum tærð samskeyti á skipsflakinu.Það tók finnsku umhverfisstofnunina og finnska sjóherinn tíu daga í júlí að ná olíunni úr skipinu. Kafarar fóru að flakinu og dældu olíu beint úr olíutönkum skipflaksins í gegnum holur sem voru boraðar á það.Ver
60.000 lítrum af svartolíu dælt úr skipsflaki frá 1941

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd